|
|
24.07.2008 21:46:12 / evahildur
sæl verið þið, tryggu lesendur þessa bloggheims. Það er liðið ansi langt síðan ég bloggði síðast og átti sko erfitt með að muna lykilorðið... Annars er ýmislegt nýtt búið að taka við hjá mér síðustu mánuði... það að vera mamma er nefnilega hellings hlutverk sem hellist yfir mann einn daginn... bókstaflega.. en hjá mér var það sjálfsagt um 3:46 um nóttina sem þessi sólargeisli leit dagsins ljós... Hún er alveg æði og ég er alveg úber stolt af henni... eins og pabbi hennar... sem er jú bara magnað  Á næstunni er mikið að gera... rétt eins og sumarið er búið að vera... mikið að gera.... brúðkaup, sumarbústaður, gæsun djamm og skemmtilegt... skemmtilegt.. skemmtilegt... síðan tekur alvaran bráðum við  Stefni á háskólann núna í ágúst, byrjar 19... spennandi.... síðan fæ ég mína eigin íbúð á stúdentagörðunum... verður kátt í koti þá... og kannski pínu einmannalegt líka  bara læra læra læra  Amanda Emma er að fara til dagmömmu eftir verlsó, sem verður svo furðulegt.... það er flest allt furðulegt þessa dagana, skil ekki hvað tíminn líður hratt, allt svo breytt... Annars er bara allt gott að frétta af okkur mæðgum, Amanda Emma búin að vera kvefuð í 2 vikur, og ég ekkert smá nefmæld... við tökum þetta kvef saman  Eyðum dögunum saman... í svona mömmuleik, annars er ég ekki alveg tilbúin í þetta staying home mom hlutverk... hlakka satt að segja geggjað til að fara í skóla og fræðast eitthvað... veit stundum ekki hve lítið ég veit... þið sem þekkið mig skiljið þetta...  heh... elska að eyða tíma með Amöndu Emmu, og Elska hana EndaLaUSt samt, heimurinn hefur bara svo mikið upp á að bjóða og ég er alveg þvílíkt lífþyrst þessa dagana og hlakka mikið til En ég lét verða að því að blogga, ekkert smá dugleg.. svo endilega kvittið og látið heyra í ykkur mínir góðu blogglesendur  Eva Hildur
»
20.03.2008 21:42:35 / evahildur
uppáhaldslagið mitt þessa studina  tjékk it át.... http://youtube.com/watch?v=lpP6qs4HYPckv, Eva Hildur
»
15.02.2008 13:32:07 / evahildur
já ég get sko sagt að það sé mikið búið að breytast síðan ég skrifaði seinast inn á þetta blogg... þetta er alveg rosalega skemmtilegt hlutverk að vera orðin mamma... litla stelpan mín sem fékk nafnið Amanda Emma er líka svo yndisleg og frábær að ég er svo blessuð með svona stilta og góða stúlku  hún er byrjuð að brosa og smá að hlæja, hún er rosaleg félagsvera, hefur svo gaman af mannsandlitinu að hún vill sífellt hafa mann spjallandi og grettandi sig framan í sig. Hún er samt svo vær og kát, sérstaklega á morgnana, vaknar alltaf brosandi og fer síðan út í vagn daginn og sefur mjög góðan lúr þar á daginn  Amanda Emma er rosalega dugleg að drekka og þyngist vel og stækkar, hún braggast semsagt mjög vel. Sjálf mamman líka og er ágætlega ánægð með lífið... síðan er hérna smá heimspeki í lok þessa bloggs fyrir ykkur sem eruð í smá tilfinninga krísu eins og ég  10 leiðir til hamingjuríks lífs.
- einvera. einvera og þögn tengja þig við sköpunargleði þína og óendalega vitnesku alheimsins.
- líkamsæfingar. Þegar þú sinnir líkamanum, sinnirðu líka huganum."að anda rétt er að lifa rétt"
- lifandi næring. rétt mataræði.
- ríkuleg þekking. Hún snýst um ævilangan lærdóm og það að auka þekkingu þína á því góða í sjálfun þér og öllum í kringum þig.
- sjálfsskoðun. öll búum við yfir hæfileikum sem liggja í dvala innra með okkur.
- vaknaðu senmma. lifðu hvern dag eins og hann sé þinn seinasti.
- hlustaðu á tónlist. tónlist lyftir andanum, blæs í þig orku, fær þig til að dansa og syngja. hún veitir þér mikla uppörvun.
- vandaðu orðavalið. Orð hafa áhrif á hugann, hvort sem þau eru sögð eða skrifuð.
- vertu sjálfum þér samkvæmur. skilningur, auðmýkt, þolinmæði, heiðarleiki, kjarkur. EF gerðir þínar eru til samræmis við þessi lögmál muntu finna djúpan frið og jafnvægi.
- einfaldleiki. Ekki velta þér upp úr smámálunum. einbeittu þér einungis að þeim málum sem hafa raunverulega merkingu fyrir þig. Ekki þóknast öðrum á þinn kostnað. Elskaðu sjálfan þig þá muntu læra að elska aðra enn meira.
núna er ég nýbúin að borða fisk og litla úti í vagni og ég við tölvuna, að hlusta á tónlist  er að spá að fara í göngu með vagninn til að hressa mann aðeins við. Hafið þið það svo gott, og eigið góða helgi... er sjálf á leið á gospelkvöld í kvöld, og ætla mér að eiga góða helgi  heyrumst, Eva... litla einstæða mamman
»
22.11.2007 15:18:30 / evahildur
ég er augljóslega ekki mikið með tölvuna undanfarið, annars er ég full heilsu og er alveg að vera búin með þessa meðgöngu, seinasti dagurinn í vinnunni á morgun, það verður rosalegt, er ekki alveg að átta mig á því hversu mikið lífið er að breytast er komin tilhlökkun í mig og fleiri, þetta á eftir að vera frábært síðan í kvöld er mæðrablessun hjá mömmu, þangar munu sennilega flestar konur í vinnunni mæta það verður fjör, hins vegar á ég svo auðvelt með að roðna svo það verður athyglisvert, hehe..... Annars endilega kíkið á barnalandssíðurnar, þar sem ansi mörg börn eru að koma í heiminn núna og munum við Dagný vera næstar. hins vegar held ég að ef ég verð hress munum við héðan að norðan, sennilega kíkja á barnið hennar Dagnýar, ef það fer jú að kíkja til okkar andandi fólksins hehe endilega að kvitta og verð sennilega með fleiri fréttir á næstunni kv,Eva.
»
26.10.2007 15:53:29 / evahildur
hæhæ er ekki mikið búin að sinna þessari síðu undanfarið, en núna er tölvan okkar sennilega að deyja, svo ég ákvað að setja inn eina færslu hérna á meðan ég komst í tölvuna í vinnunni... það er jú mikið að gerast hjá okkur familíunni, þar sem við erum ekki alveg með fast húsnæði, eða við erum búin að vera leigja hús sem síðan seldist og við erum búin að vera leita okkur af húsnæði og fundum loks eftir mikla leit, þessa frábæru íbúð í aðalstræti, alveg rosalega flott og endurnýjuð eign, þar sem við ætlum okkar að búa eitthvað áfram... og eigum ekki von á því að þessi íbúð seljist þar sem hún er ekki á sölu. Síðan er meðgangangan að fara taka enda, og við förum alveg að fara eignast lítið baby.. hehe... já ég hlæ alltaf smá í hvert skipti sem ég ímynda mér það en ég er gengin 34 vikur svo það er ekkert svo langt eftir núna þarf bara að fara kaupa vagninn, skiptiborðið og bílstólin og þrífa barnafötin..... er búin að eignast alveg heilan helling af barnafötum, og mamma ekkert smá búin að vera dugleg að prjóna á barnabörnin sem eru á leiðinni... hlakka ekkert smá til þegar Dagný verður kominn með lítinn strák... bara verst að hún sé fyrir sunnan en við hittumst samt alveg eitthvað á ekki mikinn tíma eftir í pásu svo ég held ég fari að sinna börnunum, ekki mikið af gríni én hérna er allavega svona smá update á hvað er að gerast hjá okkur og ég hlakka ekkert smá til að vera búin að flytja og skrifa svo sennilega nærstu færslu í nýju íbúðinni..... anyway... til ykkar sem lesið þetta og hafið áhuga... here u go.... og endilega kvitta kv, Evan.... með stóra bumbu
»
20.09.2007 17:49:38 / evahildur
Hæhæ er komin með barnalandssíðu... ekki mikið sem gerist á þeirri síðu en setti inn einhverjar myndir og mun koma með update eins og ég get. Endilega skrifa svo í gestabókina.... er ekki með neitt lykilorð eins og er. kv, Evan með bumbu. http://barnaland.is/barn/66159/
»
09.09.2007 12:57:17 / evahildur
jújú ég er komin heim á ágæta ísland. kom reyndar fyrir viku en þessi vika var bara svo fljót að líða að ég hef ekkert skrifað ég er sko búin að hafa það gott í fríinu og fannst ekkert svo hræðilegt að byrja að vinna aftur.... núna er ég byrjuð að vinna fulla vinnu aftur á leikskólanum, því það er betra að vera að vinna sem mest á saman staðnum, það getur verið þreytandi að vera að fara svona á milli og eiga alltaf eftir að vinna slatta þegar maður kemur heim eftir aðra vinnuna En það var frábært úti, ferðin fór samt ekki sem skildi þar sem ég og pétur fórum bara tvö saman út, því Jonni og Ella forfölluðust, en það var ekkert við því að gera þó svo að við hefðum svo sannarlega vilja hafa þau með. En við kynntumst fínasta fólki þarna úti, ágætum hjónum frá fárskrúðsfirði og einnig nokkrum strákum frá Reykjavík, og eyddum við ágætum tíma með þeim í keilu og fleira skemmtilegt. Þetta voru 4 vinir frá Reykjavík og hafði ég kynnst þeim fyrir einhverjum árum í gegnum fíladelfíu, og eru þetta frábærir strákar hehehe(skrifað hlæjandi í huganum) Fórum annars á ströndina og í sólbað. Fengum líka alls konar veður ,sólardaga jafnt og rigningadaga, en það var bara allt í því besta þar sem við vorum búin að leigja okkur bílaleigubíl og gátum fært okkur á milli, heimsóttum bestu strendur mallorca og keyrðum um, það eina sem mér vantaði upp á var að geta hoppað með Pétri af klettunum og skemmt mér aðeins, en það var svo sannarlega afslappandi að vera svona 2 saman og sitja og lesa og slappa af á þessum fallegu ströndum. Hótelið var reyndar ein hörmung, einhverjum 2 dögum áður en átti að fara út var hringt í okkur og við látin vita að við höfum verið færð um hótel og við ættum að vera á öðru svæði á ströndinni. Þau sögðu okkur að við yrðum sennilega ánægðari með þetta hótel en hitt... okei svo var farið út og ég alveg dauðþreytt, kem á hótelið, fundum loks þessa íbúð sem við áttum að vera í, þurftum að bera töskurnar okkar og opna þennan antik lás og svo var komið inn í ljóta og óhreina gluggalausa íbúð, með svo litlum svölum sem við loksins náðum að opna út á og þá var risa tré sem yfirgnæfði svalirnar... og ég var svo miður mín og ég sagði við pétur að ég gæti ekki verið í þessu fangelsi næstu tvær vikurnar.... og við heyrðum í íslandi og létum vita að við værum ekki ánægð og við vorum færð á korteri á miklu betir stað, með stórum svölum, hreint herbergi og við gátum séð bæði sól og sjó út af svölunum.... þá vorum við jú ánægð Það sem stóð upp úr ferðinni svona túristalega séð þá var alveg magnað að fara í dýragarðinn, þetta var svona garður sem maður keyrir í gegnum og það eru alls konar dýr sem eru bara laus og maður getur skoðað. Einhverskonar naut, hreindýr, nashyrningar, flóðhestar , strútar, gíraffar og fleira. og yndislegir litlir apar sem skoppuðu út um allan garðinn og upp á bílana. síðan þegar komið var á endastöðina var svona ljóna show sem var mjög skemmtilegt og við fengum að halda á litlum ljónsunga, sem var ekkert smá sætur Ströndin var alveg yndisleg og það var jú frábært að fá svona tíma saman... langar að segja að þetta færði okkur nær hvort öðru og gátum við áttað okkur á komandi tímum saman og erum orðin mjög spennt fyrir að fá litla gullið okkur í heiminn... Og á meðan við vorum úti byrjaði ég sko að stækka og það mjög, síðan vikuna eftir að ég kom heim held ég jú áfram og meira að segja að þegar ég kom í vinnuna í gær spurði ein fóstran mig hvort ég hefði nokkuð borðað bolta??? hehe Verð síðan aðeins að segja ykkur frá Petto, hann var ekkert smá búin að stækka þegar við komum að ná í hann, en hann var líka mjög glaður. ég var samt svo hissa að þetta væri hann svona rosalega breyttur og búinn að skipta um lit. Og líka allt öðruvísi... ekkert þetta hvolpaglefs og bara ekki eins frekur, þó svo að hann sé svolítið að frekjast aftur núna þegar við dekrum hann svona hehe En hann er yndislegur og við erum svo hamingjusöm eitthvað öll fyrir framan sjónavarið á kvöldin... síðan tala ég nú ekki um göngutúrana sem hann dregur mann í, nenni reyndar ekki alveg að fara með hann núna því það er svo hvasst, en ég held samt að hann nenni því ekki alveg sjálfur Verð síðan að segja ykkur eina sögu af honum síðan á laugardaginn... hehe, pétur var að fara í vinnuna og hann horfir á eftir honum frekar fúll og lætur mig alveg vita að hann sé svo fúll... síðan geng ég framhjá svefnherberginu og viti menn, minn liggur uppi í rúmi og undir sænginni og brosir til mín... hehe(hann fer semsagt aldrei upp í rúm og veit hann má það ekki)ég kalla svoleiðis á hann og hann hleypur bakvið sófa og lætur ekki sjá sig í klukkutíma hehe en myndir get ég ekki sett inn á þessa síðu svo ég set hérna tengil til að Þið getir séð eitthvað frá þessari ferð og frá mér og minni familíu kveðja Evan
»
22.08.2007 19:14:23 / evahildur
hea hea hofum thad rosalega gott hérna á Mallorca... thad
blessadist thessi ferd eftir allt saman... semsagt thá hefur
ýmislegt komid upp á en vid njótum thess núna ad vera til og hofum
thad rosalega got... aetladi bara adeins ad setja inn nokkrar línur
um ad that er gott ad vera í fríi, skirfa svo seinna
kved, Evan
»
12.08.2007 18:27:57 / evahildur
ég er að fara til Mallorca eftir 4 daga og ég
get svo alls ekki beðið..... ég er orðin svo þreytt á áð fá
alltaf bara einn dag í frí, svo það verður svo geðveikt að fara
loks í frí og þurfa ekki að vinna næsta eða næst eða
næsta dag.... þið skiljið mig.....ég er að fara í 2 vikna
frí eða ég þarf ekki að mæta í vinnu frá 17 ágúst þangað til 3
september.... það verður svo SWEET.....
hins vegar held ég að ég verði aðeins að skýra
mál mitt um af hverju ég er að fara 3 árið í röð til sama
landsins... málið er hins vegar bara einfalt... mallorca er
frílandið mitt... við elskum þetta land,
mig langaði svo sem að fara og kanna einhver önnur lönd en síðan er
manni alltaf sagt að mallorca standi alltaf fyrir sínu.... og ég
vildi vera viss um að ég væri á leiðinni á góðan stað.... erum að
fara á hótel sem við höfum áður komið inn á en ekki verið á svo við
vitum nokkuð vel við hverju við eigum að búast....
við erum að fara með vinum okkar litlu krúsí ástafuglunum þeim Ellu
og Jonna... svo það verður greinilega mikið um rómantík í þessari
ferð.... og hlökkum við öll alveg mega mikið til
Það verður upplifun að fara til útlanda
svona ólétt... ég er komin um 23 vikur en ég er sko alls ekki svo
stór (bumban) svo ég verð bara bolla á ströndinni... hehe....
annars er allt gott að frétta af okkur... fórum í skoðun og
ljósmóðirin var mjög hissa á hversu lágan blóðþrýsting ég væri með,
en eins lengi og hjartað slær þá er það ekkert hættulegt... væri
samt alveg ágætt að vera ekki með svima svona þegar maður rétt
hreyfir sig....
skrapp í sund áðan og vá hvað það var gott... hef
ekkert synt í allt sumar og vitiði að það var alveg magnað að
slappa svo af í pottinum
Ætla að fara sinna hundinum... hann er farinn að
láta heyra aðeins í sér... annars vil ég óska sjálfri mér til
hamingju með að hafa bloggað hehe
kveð í bili Evan
»
18.07.2007 22:34:47 / evahildur
Mig langaði að kynna ykkur fyrir nýjasta
meðlim fjölskyldunnar en það sem mér er ekki að takast að
setja inn mynd þá verð ég að gefa ykkur link hérna, þar sem þið
getið séð myndirnar af honum petto okkar ... hann er alveg
yndislegur og sætur og er að fá alla okkar orku þessa dagana....
annars er allt gott að frétta, er að fara í 20 vikna sónar á
morgun, hlökkum mikið til... gaman að fara og sjá þetta aðeins
raunverulegra...
hérna er hins vegar linkur þar sem þið
getið séð myndir af mér og mínum
hver veit veit nema að maður opni ekki bara bráðum barnalandsíðu
þar sem bumban er af fara láta vita af sér
http://www.picturetrail.com/gallery/view?username=evapetur
kv,Evan.
»
13.06.2007 13:28:28 / evahildur
Jæja þá er best að koma með fréttir sem margir hafa verið
að bíða eftir....
Eins og sum ykkar vitið þá munum við pétur fá
okkur hund núna á næstu dögum. Við erum búin að velja okkar hund og
við fáum hann afhentann(fáum að taka hann með okkur heim) þann 8
júlí og ég skal sko segja ykkur að hann er gorgeus... við
erum búin að fá að hitta hann nokkrum sinnum og við getum varla
beðið eftir að fá að taka hann með okkur heim.
Pétur mun vera með hann í þjálfun áður en við fáum hann og svo mun
þjálfunin auðvitað halda áfram....
þetta er semsagt svona sleðahundur eða með hinu rétta nafni
siberian husky hundur... þið verið að koma og sjá hann þegar við
fáum hann, þetta er alveg einstakir hundar...
......Bara um að gera og láta
dramana rætast
Hins vegar er ég líka með stærri fréttir.... já því að í
desember munum við pétur eignast lítið kríli.... við eigum von á
barni..... ég er sennilega gengin yfir slæma tímabilið við óléttuna
og nú er komið að góða tímanum... erum bara búin að melta þetta og
erum farin að hlakka til leyfir ykkur svo að fylgjast með... svo
skemtilegar myndir og svoleiðis
En vá er komin með stóru fréttirnar svo endilega kvittið
og leyfið mér að heyra í ykkur og svo verður bara gaman á mínu
heimili þegar hundurinn okkar kemur
kveðja.... Evan
»
09.06.2007 10:50:17 / evahildur
Já það er sko hundæði í gangi hjá familíunni.... þetta er
semsagt mamma hvolpsins okkar sem við fáum eftir 4 vikur
kv, Eva Hildur
»
27.05.2007 15:02:33 / evahildur
jæja er komin tími á nokkur orð hérna
hins vegar er ég jú enn á lífi ,ég hef bara ekki mikið verið í
tölvunni... það er alveg merkilegt hvað lífið mitt snýst um
veðrið.. um leið og það birtir smá til þá er allt breitt hjá
mér
Er komin með nýja vinnu.... Já ég er hætt í leirunesti og ég ætla
mér ekki aftur þangað... ég er að vinna leikskólanum fyrir hádegi
og í dótakassanum eftir hádegi, og líkar það bara vel
Það sem stóð upp úr núna á seinustu misserum var jú hann Josh
Groban.... þvílíkur geimsteinn... hann er sko einn besti söngvari í
heimi... og vitið þið það sem komuð ekki á tónleikana að hann er
miklu betri LIVE heldur en á öllum plötunum sínum, að hlusta á
þennan mann syngja beint fyrir framan sig er alveg
heaven...
en vitið þið það að það er ekki nóg með það... heldur hann er
líka bara frábær maður, hann er með frábæran húmor og er líka
þessi góði maður með sitt eigið góðgerðar félag. Þegar hann var að
fara syngja lag sem heitir lullaby þá segir hann frá því að hann
hafi verið að heimsækja munaðarleysingjahæli í Afríku og hann vildi
svo semja lag handa þeim... og vá það lag var svo sannarlega
frábært hjá honum. Og í einu laginu(I´m not a hero) þá
birtist hann á svölunum hjá fólkinu í hjólastólunum og gegnur
síðan um salinn og syngur lagið.. það var svo frábært... ég var svo
skælbrosandi allan tíman.... þangað til þetta var búið..... 
Hlakka bara til næstu daga og vona að allt fari á besta veg...
ég skal koma með nýja færslu innan mánuðs og segja ykkur nýjustu
fréttir...
kv, Eva Hildur
»
25.04.2007 17:34:02 / evahildur
Það er sko gott að hafa svona bjarta daga. Það er frekar
hressandi að vakna á morgnana með sólina inn um gluggan, þrát fyrir
mikinn óhressileika.... lítið um blogg... lítið um
lesningu, þar sem þetta er ekkert rosalega vinsæl síða þá hef ég
ekki mikið verið að blogga hérna... en það kemur alltaf ein ný
færsla í mánuði, svo hérna kemur ein.
Margt og mikið að gerast hjá minni undanfarið. Dagný systir var
í heimsókn heila viku í mánuðinum. Það var eitt einhverjum tímunum
saman, meðal annars farið í sund og út að borða þarna einn daginn
og ég ákvað að skella mér á chicken fahitas pizzu og gleymi að
biðja um að taka jalapenoið frá..... og vá hvað það var ekki hægt
að borða pizzuna... þvílík sóun á pening En það var
sko ágætt að hafa hitt viktoríu þennan tíma, hálf leiðinlegt hvað
er langt í þær(þau).
Hins vegar styttist í að ég og Jóna skellum okkur suður á Josh
Groban... það verður svo frábært Og síðan verður eitt helginni
fyrir sunnan... og vissulega gist hjá henni Dagný okkar
hann er sko búin að hljóma í
bílnum undanfarið og tilhlökkunin er orðin mikil
þvílíkt undrabarn
Er ekki viss hvað á að gera við sumarið en ég verð í
einhverju sumarfríi í sumar, allavegana frá leikskólanum... það er
munur að vera vinna þar sem vinnustaðurnn lokar og maður verður að
fara í sumarfrí... mótmæli því ekki....
Við mamma vorum að leika okkur að skoða hvernig
íbúðalánasjóðurinn virkar og vorum að prufa að gera greiðslumat á
netinu, og vá hvað ég var hissa.... það sem er ætlast til að maður
sé með í laun.... ég held barasta að við þyrftum að drífa okkur í
skóla til þess að fá hærri laun svo við getum farið að leggja okkur
einhvern grunn!! Það er sko greinilegt að það er enginn
í ríkisstjórn sem er að byrja að búa... eða á börn sem þurfa að
byrja að búa...... hins vegar skil ég ekki dúddan.... einn
Björgólfin að kaupa 50 milla hús handa 16 ára dóttur sinni.......
ætli ég sé ekki bara öfundsjúk hehe...
en já það er margt sem er að koma manni á óvart undanfarið....
svona þegar maður spáir út í lífið Hins vegar er það bara eitt
stórt kraftaverk hvað við þroskumst mikið með aldrinum... var að
koma úr heimsókn frá frænku minni, þar sem hún var með einn
pínulítinn 2 vikna gamlan og hann er svo lítill
Núna ætla ég hins vegar að koma mér að ná í kallinn.....
minn yndislega karl
engilega kvittið hjá mér og látið mig vita ef þið lesið eitthvað
í gegnum bloggin mín.... please do Eva
Hildur
»
04.04.2007 16:07:45 / evahildur
Það virðist vera að önnur hver færsla hjá
mér verður skrifuð þegar ég er veik... ég er reyndar öll að
koma núna, er búin að vera veik síðan á sunnudaginn og þetta
eru sko ekki búnir að vera skemmtilegir dagar.... eins og þið
öll vitið hvað það er jú leiðinlegt að vera
veikur....
Ungfrú
norðurland var seinustu helgi, alveg frábærar og
fallegar stelpur sem tóku þar þátt... en keppnin fór nú næstum eins
og ég hélt... fannst reyndar að íris myndi ná einhverju sæti, en
það er bara frá mínu sjónarhorni litið... ég fór nú reyndar ekki á
keppnina....
er nú samt viss um
að hún Ella hafi staðið sig vel í þessu öllu
Við fórum í
óvissuferð um helgina... til mývatns, það var rosalega fínt, kósí
að hafa gott veður og engar mýflugur úti í
mývatnssveit.
fórum í jarðböðin... alveg frábær
slökun... vorum þar ásamt mörgum eistum... hehe... fólki frá
eistlandi...
Ég
sit núna og er að horfa á vörutorg..... ojjj..... hvað er málið,
þetta er sko leiðinlegt, langdregið..... maðurinn er svo rosalega
að reyna að selja sál sína fyrir þessar vörur... og vá þegar hann
er að reyna selja brauðboxið.... það er aldeilis að fólki finnst
leiðinlegt þegar brauðið er orðið hart... það nánast
grætur!!!
HeheVerð samt að segja
að þetta naglasett heillar mig....
Hlakka síðan rosalega til páskanna, vonandi
verður svona gott veður... allir í fjallið að ég
held....Hlakka síðan
til að borða páskaeggið mitt á
sunnudaginn....
Endilega kvittið hjá mér og eigið góða
páska
Eva
Hildur
»
Síður: 1 2 3
|
|